Long time-no writing..hehe
Þá er kominn rúmur mánuður frá síðustu færslu. Var eiginlega búin að taka ákvörðun um að hætta þessu en mér snerist hugur hehe
Margt er búið að ske frá því síðast...ég er officially orðin nemi aftur og er ég að brillera í náminu þó svo ég segi sjákf frá
Ég er líka farin að vinna aftur í leiru eftir 3 ára fjarveru. Það er nú bara fínt að vera komin aðeins í vinnu þó svo ég megi nú ekki missa mig í vinnunni sökum ýmissa kvilla...en já vara svaka fjör og mjög skemmtilegt fólk. Í ramhaldi af þessu er ég búi að stofna Nútíma danskóla Alísar Ólafs þar sem ég mun kenna nútímaleg dansspor sem ég hef fundið upp i vinnunni ásamt smá lærdómi frá SYTYCD hehe...það sem manni dettur í hug
Í dag var sorgardagur því Brói lét verða af því og flutti til borgarinnar aftur
Hvað skal segja....Dagvaktin byrjuð og var ég rétt í þessu að ljúka við þátt númer 2!! Þessir þættir eru náttúrulega bara snilldin ein og orðnir ekkert smá súrir í þokkabót haha! Ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar hér um hvað gerðist
Einnig fer að líða að afmælinu mínu, það er nú bara eftir viku
Jæja ég ætla að segja þett gott í bili...Gústa, vona að þú sért ánægð með þessa færslu
Alís Loksins-komin-færsla-San.....
TIL HAMINGJU ÍSLAND:)
Helgin mín er búin að vera svo góð. Á föstudagskvöldið fórum við í mat til tengdó og slöppuðum svo af í Strætinu enda líður ekki á löngu þar til við verðum komin í nýja íbúð, aka Hlíðina sem vonandi verður jafn kósý og hin
Laugardeginum eyddi ég í undirbúningui fyrir kvöldið þar sem planaður var megahittingur. Ég. Gústa og Svansa byrjuðum kveldið á dinner á Greifanum þar sem bernessósan flæddi útum allt
Í dag vaknaði ég að sjálfsögðu og horfði á leikinn en dottaði svo yfir honum og svaf svo til tvö....fórum svo upp í Hlíðina að mála veggi og vorum við bara að koma heim rétt áðan og gripum með okkur Brynjuís
Segi þetta gott í dag, sjáumst á förnum vegi... Alís Glaða San
Handbolta-fever!!!
Það sem á daga mína hefur drifið undanfarið fyrir utan ÓL offkors þá fór ég í afmælishitting í sveitina á sunnudag og var það svona svaka stemmning og HEITT
Heiða nafnan mín dafnar ekkert smá vel og er algjör rúsína. Og hún er svo sæt að sólin er feeeeiiimin....
Jú eitt enn, ég er komin inn í fjarnámið í VMA á sjúkraliðabrautina sem ég ætla að dunda mér við á næstu misserum
Jæja farin...... Alís GústuSan
Allt að ske:)
Það er svo ótrúlega margt búið að ske að ég bara neyðist til að blogga
Í fyrsta lagi þá eru Hanna og Raggi búin að eignast litla sæta dúllu og um leið eignaðist ég nöfnu!!! Já góðir hálsar stúlkan hefur hlotið nafnið Ragnheiður Alís thank u very nice
Í öðru lagi þá var versló mjög fín. Fór með krakkana í tívolí og fór í svona klikkaðan kolkrabba (eða eitthvað svoleiðis), skemmti mér alveg konunglega og pissaði næstum á mig úr hlátri
Í þriðja lagi fór ég suður á Eric Clapton, sem voru bæ ðe vei mínir fyrstu offisíal tónleikar, og var hann alveg geggjaður
Í fjórða lagi þá var Ísland að rústa þjóðverjum á ólympíuleikunum og ég var að missa vitið úr spenningi!!ég elska handboltann hehe!!bíð spennt eftir næsta leik!!
Í fimmta lagi er enski boltinn að fara að rúlla og hyggst ég horfa á Liverpool-sunderland á sunnudeginum og þá verður skálað fyrir upphafi mjög góðrar leiktíðar...(ja ég segi svona). Góóó Liverpool
Svo er líka fólk að mæta á klakann reglulega. steinunn komin frá ástralíu og Gústa að koma í helgarferð þann 21
Jæja, ég er þá farin að sinni og kem aldrei aftur.
Bæjó, Alís Stolta San
Versló að detta í hús!
Já þá er komið að því! Verslunarmannahelgin tæknilega byrjuð og ég stefni á að eiga góða helgi þetta árið! Ég var vissulega í Noregi í fyrra og missti því af gleðinni! Ekki að ég hafi ekki átt góða verslóhelgi úti en þá vissulega fékk ég bónorð og læti
Lífið er ljúft þessa dagana á Akureyrinni og er ég búin að eyða síðustu dögum í bráðnun í hita!! Ég held án gríns að ég hafi aldrei upplifað svona hita á Íslandi áður....skellti mér í litun og klipp í gær til að vera flott um helgina og svo var litun og plokk í dag og er ég því klár í slaginn hehe
Í dag fór ég í lunsj með Hönnunni, Gunnunni, Þórhildi og Eddu Júlíönu!!! Fékk að kyssa og knúsa Edduna og ég er alveg sjúk í svona stykki. Kannski seinna.....
Jæja ég ætla bara að segja þetta gott og góða helgi allíhúppa og Gústa, skemmtu þer í Dk
Sjáumst, Alís VerslóTan
Sikk sikk sikkó
Aloha...
Þá er kominn þriðjudagur og ekki nema rétt rúm vika eftir af mánuðinum og svo kemur ágúst og þá er ég að fara á Eric Clapton tónleika og svo bara kominn september og svo á eg afmæli og svo koma bráðum jólin! jjjiii bara allt að ske hehe
Ég er með einhverja tegund af flensu núna, er með hita og kvef og er bara í afslöppun uppí sófa undir sæng í Friends maraþoni. Liðið er í bustaðnum og ég er að missa af því en fer kannski á morgunn ef ég verð orðin hressari![]()
Um helgina er svo ættarmót hjá Inga famelíu pabba hans megin útá Hauganesi þannig að fyrsta útilegan þetta sumarið er að detta í hús!!jibbí
alltaf gaman á ættarmótum. Styttist líka í ættarmótið okkar í lok ágúst, very nice![]()
Jæja ég ætla bara að segja þetta gott núna og halda áfram í maraþoninu...
Alís SikkóSan![]()
Dansmeistari í tvenndarleik'08
Þá er fjölskylduhelgin Northbay'08 að baki þetta árið og er ég komin heim aftur
Á föstudaginn ætluðum við í útilegu en sökum rigningarspár ákváðum við að fara í sumarbústaðinn í Hamragili og vorum þar yfir helgina. Fórum í hvalaskoðun laugardeginum og sáum við bunsj af hvölum
Sossan mín er komin heim af spítalanum og er í fulle fem núna!Sem betur fer, hélt hún kæmi ekki heim aftur....
Ásrún og stelpurnar eru komnar í bæinn í mánuð núna og er því maraþonið í Bláu-könnu-ferðum offisíalí hafið hehe!!
Anyhoo, er bara heima að fara að þrífa því það er fólk að koma að skoða íbúðina...já SURPRISE, við erum að flytja aftur
Jæja nóg komið í dag...bið bara að heilsa og við sjáumst á förnum!!!!
Alís Dansandi San
Home sweet home!!
Þá er gríska gyðjan komin heim frá Rodos
Allavegana, frá því ég kom heim er ég búin að vera svooo þreytt og nenni ekki að gera neitt. Er að fara í útilegu með fjölskyldunni hans Inga um helgina og verð því að reyna að safna kjarki og orku til að lifa það af hehe
En eitt skemmtilegt gerðist í dag. Ég eugnaðist lítinn frænda í Denmarl sem var nefndur Ísak Örn og ég segi bara til hamingju Dísa og Elli og til hamingju Gústa með að vera loksins orðin alvöru frænka
Annars eitt að lokum, Gusta Gunn verður 25 á morgunn og því fær hún STUÐ OG PARTEI KVEÐJU FRÁ öLLU san og þúsund kossa og faðmlög!! Hringi í þig á morgunn gamla
Jæja komið nóg í bili...
Knús..Alís Tan San
